Níundi
Ég fór áðan niður í Borgartún 21 þar sem Ríkissáttasemjari er til húsa. Þar voru mættir nokkur hundruð kennarar til þess að sýna samninganefndinni að við stöndum við bakið á þeim.
Nemendur úr KHÍ komu fylktu liði með kröfuspjöld sem var frábært hjá þeim.
Núna er samninganefndin að störfum. Fróðlegt að sjá hvað kemur út úr því.
Launaseðillinn kom í gær. Útborgað: 0. Laun og aðrar greiðslur. - 33.000 (mínus) Doldið spes.
Í gær fór ég í Þjóðminjasafnið enda frítt. Þar voru margir kennarar sem ég þekki og næstum því eins og reuninon hjá Kennó. En mikið rosalega er þetta flott safn!!! Við getum verið virkilega stolt af þessu. Mér fannst skemmtilegast að skoða á efri hæðinni og brúðkaupssýningin var frábær. Mæli með henni.
Jæja, ég ætla að föndra í dag og fara á konukvöld létt 96.7 í kvöld.
Kveðja,
