Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

mánudagur, október 31, 2005

Jóla hvað...

Halló!
Ég valdi enn eitt útlitið á síðuna mína. Mér fannst eitthvað svo erfitt að lesa þetta síðasta.

Er búin að komast að því að svefn er gríðalega mikilvægur fyrir heilsuna, útlitið og sálartetrið. Þurfti að vaka til 6 sunnudagsmorgun vegna veikinda B. (gubbupest). Svaf til 10.30 og var svo allan gærdaginn hálf skrítin. Sljó í augunum, með "þynnkumaga" og auðvitað þreytt. Ótrúlegt hvað ein svona nótt hefur áhrif á mann. Væri nú ekki fínt að geta lagt inn í "svefnbanka" til þess að eiga innistæðu fyrir svona nætur?

Í dag eru samkvæmt nýjasta innliti mínu á jólasíðuna eru 54 dagar til jóla og ég er búin að afreka það að kaupa 4 jólagjafir!!!! Hugsa sér og það er bara október ennþá. Vonandi hef ég ekki falið þær svo vel inni í skáp að ég gleymi þeim þegar kemur að því að gefa þær.
Ég er búin að skoða jólaföndurblöðin mín nokkrum sinnum og get bara ekki ákveðið hvað ég á að ráðast í að gera þetta árið. Er búin að lofa mér í föndur með systur minni þannig að ég verð að fara að ákveða mig.

Ég tel núna klukkustundirnar niður í vetrafríið mitt....eða réttara sagt kennslustundirnar. Þær eru: 5 tímar á morgun og svo er einn fundur. Jibbííí. Miðvikudagurinn er þaulskipulagður. Leikfimi, lunch og búðarráp í búðir sem ég hef aldrei tíma til að kíkja í. Getur ekki annað en orðið góður dagur :-)

mánudagur, október 24, 2005

Konur... meira

Fann þetta á netinu og ákvað að skella þessu inn:
Spurning hvort ég sé alveg glötuð ef ég fer ekki í bæinn.

Kannski ég skutli krökkunum í vinnuna til S og fari....er enn að bræða þettta með mér.


Vegna þess að:
...atvinnutekjur kvenna eru aðeins 64,15% af atvinnutekjum karla
...konur eru með 72% af launum karla fyrir jafnlangan vinnutíma

...barneignir hafa neikvæð áhrif á laun kvenna en jákvæð áhrif á laun karla
...margar konur búa við öryggisleysi og ógn á heimilum sínum
...ein af hverjum þremur konum verður fyrir kynbundnu ofbeldi á lífsleiðinni
...konur uppskera ekki í samræmi við menntun sína
...konur í fyrirtækjarekstri hafa verri aðgang að fjármagni
...ábyrgð á umönnun barna og heimilisstörfum er enn að mestu á höndum kvenna
...umönnunarstörf eru með lægst launuðu störfum á vinnumarkaði
...rödd kvenna er veik í fjölmiðlum
...litið er á líkama kvenna sem söluvöru
...kona hefur aldrei verið forsætisráðherra, bankastjóri eða biskup
...konur hafa aldrei verið helmingur þingmanna
...konur njóta ekki jafnréttis á við karla
...þessu þarf að breyta. Ég þori, get og vil!

Kvennafrídagur

Fréttablaðið fær plús í dag, er með bleikan haus á blaðinu. Sýna konum samstöðu með þessu.
Þetta er í rauninni mjög merkilegur dagur. Hugsa sér að það væri hægt að draga fram skiltin sem notuð voru fyrir 30 árum og þau eiga enn við í dag. Þetta er ekki alveg nógu gott.
Er ekki alveg búin að gera það upp við mig hvort ég skundi niður í bæ þó svo mig langi. Ég mikla það eitthvað svo fyrir mér að dröslast með krakkana tvíbreiðri kerru og þurfa að leggja lengst í burtu. Strætóar henta mér ekki þegar ég er með þessa "huge" kerru.
Kannski ég drífi mig bara heim og verði með í anda.
Ég geng út kl.14.08 eins og aðrar konur (og sæki börnin á leikskólann).

Ég var mjög mikill femínisti í morgun, sagði eiginmanninum í gærkvöldi að hann gæti vaknað sjálfur og gæti straujað skyrtuna sem hann ætlaði í sjálfur.
Hann vaknaði sjálfur við vekjaraklukkunni sinni og fór í óstraujaðri skyrtu á morgunverðarfund.Kannski er það akkúrat þessi eina skyrta sem er straujfrí, ég man það ekki.

Samræmdu prófin eru búin. Mikið er ég fegin.
Íslenskuprófið var ekki skemmtilegt. Hér er dæmi úr stafsetningunni:
(Feitletruð orð eru orð sem nem. áttu að setja inn í.)

Það getur verið sáluhjálparatriði fyrir Brynhildi tefla reglulega.
Í dag standa leiðbeinendur ekki við töfluna og reyna að miðla öllum sömu vitneskunni.
Ekki er nefnilega víst að fram fari mikið nám þótt kennslan prýðileg.
Ætla ekki að segja hvað mér finnst um þessar tvær síðustu setningar. Er það vitleysa í mér að það er talað niður til kennara? E.t.v. er ég ennþá svo bitur eftir verkfallið í fyrra....

miðvikudagur, október 19, 2005

13 dagar í vetrarfrí

Ég er þekkt fyrir að telja niður í hitt og þetta og mundi skyndilega að ég hef alveg gleymt að telja niður i laaaaangþráð vetrarfrí. Nýjasta talning: 13 dagar :-) Það verður ljúft að komast í smá frí.

Óvissuferðin var mjög skemmtileg. Eftir viðkomu í mjólkurbúðinni og sjoppu lá leiðin austur á Nesjavelli (er það ekki annars austur???).
Þó að ég hafi unnið 3 sumur við skógrækt á Nesjavöllum hef ég aldrei gerst svo fræg að fara inn í virkjunina. Þar fengum við örstutta kynningu og svo glæsilegar veitingar.
Síðan var farið út í sérstaklega gáfulega leiki... t.d. láta blöðru ganga, semja ljóð og eitthvað fleira.
Mitt lið stóð sig á heildina litið mjög vel, en vegna hliðarvinds gekk blöðruleikurinn ekki alveg nógu vel.
Næsta stopp var sumarbústaður í Grímsnesi og þangað kom Grillvagninn. Það var ferlega gaman í bústaðnum og fínn matur. Var svo komin heim um miðnætti.

Á morgun verða samræmduprófin í 7.bekk. Ég á ekki von á öðru en að mitt lið standi sig vel. Fyrir áhugasama er hægt að kíkja á prófin hér.

föstudagur, október 14, 2005

Ofvirk og óvissa

Ég held svei mér þá að ég sé ofvirk. Ég er að blogga í þriðja daginn í röð! Held að það hafi bara ekki gerst áður.

Afrekaði það áðan að horfa á hálftíma af íslenska Bachelornum. Ég veit satt best að segja ekki alveg hvað mér finnst um þennan þátt. Tók eftir að gæjinn var búinn læra stunurnar sem einn af alvöru Bachóunum var alltaf með (get ekki munað nafnið en það er þessi sem var á undan Andrew Firestone, ljóshærði gæinn...).
Stuna/Andvarp...... skipta um stellingu... segja nafnið.... viltu gera mér þann heiður að þiggja þessa rós. Hehe... bjánahrollur...
Ég myndi gefa mikið fyrir einn gamlan góðan Bachó klúbb aftur. Við vorum nefninlega nokkrar stelpur sem hittumst (þekktumst ekki allar) og horfðum á nokkrar Bachó seríur. Gúlluðum í okkur alls kyns veitingar og gláptum á þættina.
Get ímyndað mér umræðurnar sem yrðu eftir þennan íslenska.
Ætla ekki að missa af næsta þætti.

Á morgun er ég að fara í ferðalag. Veit ekki hvert. Veit bara að ég á að vera klædd til þess að vera úti, en samt ekki í gönguskóm.. humm....
Semsagt óvissuferð. Ég er alveg viss um að það verði gaman þó svo að mér finnist óþægilegt að vita ekki hvert ég er að fara. Þarf að vita það til þess að vita í hverju ég á að fara.

Adios

þriðjudagur, október 11, 2005

Bókatíðindi..

Var að uppgötva mér til mikillar gleði og ánægju að skemmtilegasti tími ársins er að renna upp.
Nýjar bækur eru að koma út. Ég bíð spennt eftir bókatíðindunum, ritdómum ofl. Reyndar hef ég ekki verið eins afkastamikil í bókalestrinum síðustu ár en ég er samt alltaf að lesa eitthvað.
Ég er svo skipulögð að ég skrifa alltaf niður eftir jólin (áður en ég hendi bókatíðindunum) bækur sem mig langar að lesa.

Kveðja, Þe búkwörm

mánudagur, október 10, 2005

Mánudagur

Jamm, mánudagur enn og aftur. Vegna takmarkaðs svefns aðfaranótt sunnudagsins vantaði mig svo sem eins og 2 tíma í morgun þegar ég vaknaði.
Við hjónin vorum á glæsilegri árshátið VISA sem haldin var á Hótel Selfoss. Frábært að gista á hóteli en eini mínusinn var að þurfa að rífa sig á lappir til þess að missa ekki af morgunmatnum. Ég tímdi alls ekki að
sleppa honum. EN... þetta var góð tilbreyting að gista "úti á landi" og skemmtileg árshátið :-) Þar var eitt fyndnasta skemmtiatriði sem ég hef orðið vitni að. Af því að ég hef svo rosalega marga lesendur að blogginu ætla ég ekki að kjafta því til þess að eyðileggja ekki fyrir öðrum sem e.t.v. lenda í því sama seinna.


sunnudagur, október 02, 2005

Nýr mánuður...

Gott að það er komin ný vika.
Síðasta var frekar erfið eftir heimsókn lækjarkötu. Þetta orð lærði ég í síðustu sunnudagskrossgátu. Fyrir þá sem hafa ekki hugmynd er þetta annað orð yfir niðurgang (smekklegt). Fékk reyndar annað í kaupbæti sem kallast uppköst. Ég held að ég hafi ekki orðið svona lasin lengi. Ég ætla ekkert að lýsa þessu í smáatriðum.
Ég mætti þó í vinnuna á þriðjudaginn 2 kílóum léttari, en ég er nú búin að innheimta þau léttilega aftur.

Skrapp aðeins í Smáralindina í dag til þess að gera svakalega góð kaup á Kauphlaupinu, eða þannig. Fékk vægt sjokk yfir verðinu á barnafötum. Ég sem er svo vön að kaupa í útlöndum (nú hljómar þetta eins og ég sé alltaf í verslunarferðum) eða fæ úr H&M þegar mamma fer út.
Það er bara ekki möguleiki að ég kaupi eitt stykki barnapeysu á 4400 kall.
Á morgun þarf ég að kaupa nokkrar sokkabuxur á B, vonandi eru þær ekki allt of dýrar.

Jæja, ég verð að þjóta. Sunnudagskrossgátan bíður og það er fundur í krossgátuklúbbnum á morgun. Verð að vera búin með aðeins meira.