Húsmóðir með stóru H-i
Fékk fast skot frá litlu systur um að ég væri svo dugleg að blogga. Eða þannig sko.
Satt best að segja er að velta því fyrir mér að hætta þessu. En svo hugsa ég að kannski lesi litli bróðir hvað stóra systir er að gera svona dags daglega eða að systir mín kæmist að einhverju sem ég gleymi að segja henni í daglegu símtölum okkar.
Anyway.... ég var ekkert smá mikil húsmóðir í dag. Bakaði skúffuköku í kaffinu og svo var læri með öllu í kvöldmatinn. Ef þetta er ekki að vera mikil húsmóðir þá veit ég ekki hvað! Börnin kunnu svo sannarlega að meta þetta skúffukökuframtak.
Skrapp út í hlaupatúr í dag. Finnst alltaf jafn skemmtilegt að hlaupa upp "brekkuna" sem ég komst upp í 3 áföngum um páskaleytið í fyrra. Nú flokkast þetta ekki sem brekka heldur örlítill aflíðandi halli. Já, það er alveg æðislegt að finna mun á sér. Nú er Glitnis hópurinn minn kominn á fullt aftur. Nú verður áherslan sett á að bæta hraðann sem ég er sko alveg til í! Fyrsta hraðaæfingin var sl. þriðjudag. Voðalega eru 400 metrar langir! Nú lít ég allt öðrum augum á 400 m hlaup á frjálsíþróttamótum.
Nú verð ég að fara að fjárfesta í nýjum skóm. Í þetta skipti ætla ég að kaupa mér skó í réttu númeri. Ég er búin að fara í smá göngugreiningu og kynna mér málið. Nú þarf ég að druslast í Útilíf og kaupa skóna.
Þegar ég hljóp í dag með U2 lagið Beautiful day í eyrunum hugsaði ég hvað ég væri nú heppin að geta hlaupið. Það eru ekki allir jafn heppnir og ég. Það eru búin að vera tvö alvarleg slys á fólki í kringum mig á stuttum tíma sem fær mann ósjálfrátt að þakka fyrir það sem maður hefur.
Carpe diem :-) Njótið dagsins! Maður veit aldrei hvað morgundagurinn ber í skauti sér!