Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

miðvikudagur, september 21, 2005

Nýtt look

Halló!
Það var nú ekki mikið mál að breyta útlitinu á síðunni. Takk Essý! Ég ætla að hafa þetta dökka útlit núna í tilefni þess að það er farið að dimma úti og kólna.
Svo er ég algjör fegurðardís... NOT... ég er komin með svo ógeðslega frunsu að það hálfa væri meira en nóg. Ég get bara ekki munað eftir því að hafa fengið svona ófögnuð áður. Ég var svo græn að ég hélt að þetta væri bara svona ófrýnileg bóla. Ó nei.. ekki bólufés heldur frunsufeis. Jæks... Ég veit ekki hve margir spurðu mig í dag hvort ég væri með frunsu. Nei, ég var að fá mér Botox. Hvurslags spurning er þetta?

Ég fer í fyrramálið í morgunmat í boði Íslandsbanka, sérstaklega fyrir hlaupahópinn. Ég gerðist svo djörf að ég fékk frí í vinnunni til að fara. Get ekki misst af því að fá góð ráð fyrir framhaldið. Ég er búin að vera nokkuð dugleg að fara að hlaupa, enda tími ég ekki að missa þetta niður. Nú þarf ég bara að fara að setja mér ný markmið.

Kveðja, The new me

mánudagur, september 19, 2005

Nöfn

Hvað segið þið um þessi nöfn:
Ævar Eiður

Línus Gauti
Mist Eik????

Þetta var í einu atriði í Stelpunum, alveg meiriháttar fyndnir þættir.


Svo benti einn nemandi minn á: Ísak Skúli (prófið að segja þetta hratt)....
Ég er eitthvað klikk, ég get endalaust flissað þegar ég segi þessi nöfn.

Ég er búin að fá leiðbeiningar um hvernig ég á að breyta bakgrunninum. Geri það við fyrsta tækifæri.

föstudagur, september 09, 2005

Helgi

Ég mun seint teljast til æstra bloggara, en ég blogga þó öðru hvoru.
Ég er að reyna að finna út úr því hvernig ég breyti um bakgrunn (komin með ógeð á þessum sápukúlum). Ef ég finn ekki út úr þessi skipti ég yfir í fólk.is/gurdan.... Can someone please help me???

Enn og aftur er komin helgi :-) Ýmislegt skemmtilegt er á dagskrá. Þ.á.m fyrsti tími í
íþróttaskólanum hjá EogB. Það verður örugglega og ég á von á því að þau geti þá fengið smá útrás fyrir hreyfiþörfina. Svo er fjölskyldukaffi hjá litlu systur á sunnudaginn. Semsagt familíuhelgi sem er BARA gott.