Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

þriðjudagur, apríl 24, 2007

Tómstundir barnanna...

Ágætishelgi að baki. Vorum með óvænt "sammenkomst" á föstudagskvöldið. Þar voru mættar mágkonur mínar með mökum og svo býr tengdapabbi hér meðan hann er að vinna á landinu.
Við fengum okkur rauðvín og osta og tókum svo Buzz í playstation. Hver segir að það geti ekki verið gott að eiga playstation?? Við hjónin sigruðum báðar keppnirnar en það þarf alltaf breitt bak til þess að geta tekið commentunum sem maður fær þegar sá sem á leikinn vinnur. En ótrúlega gaman að hittast svona.

B er byrjaður að æfa knattspyrnu. Ég fór með hann á fyrstu æfinguna í síðustu viku. Fram til þessa hafði pabbinn alltaf farið með hann. Þar voru feður í meirihluta að fylgja sonum sínum á æfingu.
Í dag byrjaði svo dóttirin á örstuttu vornámskeiði í Ballett. Þar voru BARA mæður að fylgja dætrum sínum. Að vísu kom einn afi með barn á næsta námskeið á eftir.
.
B var með en ætlaði varla að vilja koma yfir þröskuldinn því að þetta var stelpustaður. En um daginn þegar E kom með í fótboltann langaði hana svo að taka þátt.

Hm..... dálítið fyndið

föstudagur, apríl 20, 2007

Gleðilegt sumar!

Dásamlegur dagur í dag.
Sól og blíða þar sem lognið var.
Fórum í Íshesta í Hafnarfirði og krakkarnir fengu að sitja á hesti 2 hringi í gerðinu. Bara frábært og þau alveg í skýjunum.
Skruppum svo aðeins í bæinn. Kíktum í Þjóðmenningarhúsið á náttúrulífsmynd. Þolinmæðin dugði í 1/2 mynd um sel og 1/eitthvað lítið um hunda.
Urðum svo að líta á brunarústirnar. Úff, þetta var dálítið dapurt. Mér finnst verst með græna hornhúsið. Mér hefur alltaf fundist það svo flott.
Ætluðum á kaffihús kennt við París, en þar var þjónustan engin og við gáfumst upp. Fórum frekar í Perluna og fengum okkur ís.
Tengdapabbi og mamma voru í mat. Krökkunum fannst furðulegt að fá ömmu og afa í mat en samt voru þau ekki sama settið.

Góður dagur :-)
Sumarkveðjur

þriðjudagur, apríl 17, 2007

Dekur með stóru D-i

Ah... ég fór í dekur á Nordica á laugardaginn. Vinnan var með árshátíð og bauð kvenfólkinu í dekur.
Við fórum í pottinn þar sem við fengum herðanudd.
Ég valdi mér nudd og andlitsbað. Fór fyrst í nuddið. VÁ hvað það var geggjað. Hugsa að ég gæti alveg vanist því að fara reglulega í nudd. Þetta var víst klassískt nudd og var ég nudduð frá toppi til táar. Andlitsbaðið var sko ekki síðra, nudd þar líka. Þegar herlegheitin voru búin var ég svo slök að ég ætlaði varla að meika það að standa upp. Druslaðist samt í sturtu og uppgötvaði að ég hafði gleymt sjampóinu. Ekki sniðugt þegar maður er með nuddolíu í hárinu, en well allar hinar höfðu líka gleymt sjampói.
Eftir þetta fórum við á kaffihús og fengum okkur súpu. Bara æði.
Kvöldið var líka fínt, allt í rólegheitunum, frábær matur og skemmtilegt fólk.
Það sem ég lærði af þessu er nú ætla ég að dekra við mig reglulega. Eitthvað meira en litun og plokkun sem seint verður talið til dekurs :-/. Næst á dagskrá er fótsnyrting.

Allt fínt að frétta af okkur.
Hafði það af að klippa frumskóginn minn í páskafríinu. Það kemur svo bara í ljós þegar laufin fara að koma hvernig til tókst.
Af hverju er ekki til almennileg uppflettibók um trjáklippingar?? Mig vantar svoleiðis.

Adios...