Veðurblíða
endalaust!
Þetta er að verða eins og í útlöndum. Maður fer bara í sumarfötum á morgnana án þess að kíkja á hitamælinn fyrst. Dásamlegt!
Skellti mér aftur upp á Esju í gærmorgun. Þurfti nauðsynlega að reyna að bæta tímann minn frá því í þokunni á mánudagskvöldið. Mér fannst erfiðara að fara þetta í þessum htia sem var í gær og þurfti þess vegna að stoppa tvisvar til þess að drekka (stoppaði klukkuna á meðan - kannski er það svindl í tímatökunni??). Ég ákvað að ég þyrfti að drekka til þess að lognast ekki út af þarna í hlíðinni.
Komst upp að steini á tæpum 44 mín. Bara ánægð með það og 3 mín bæting frá mánudeginum. Þetta er hin fínasta æfing finnst mér og ágætis tilbreyting. Næst þegar ég fer ætla ég að fara hægra megin og sjá hvaða tíma ég get náð þá leið. Það er örugglega auðveldara að skokka niður þeim megin.
Dreymdi svo erfiðan draum í nótt. Ég var að hlaupa í RM og það gekk svo hægt og ég var svo þreytt í fótunum. Hugsaði að það væri ekki sniðugt að skokka á Esjuna daginn fyrir hlaup. Hehe... það hljómar eins og ég sé algjör hlaupari.
Ég ætla að grafa upp fleiri sögur af Laugavegshlaupinu. Dáist að fólki sem fer í þetta hlaup. Þvílíkt afrek.
Bara 2 vinnuvikur í frí!!! Jeijeijei...
Sólarkveðja...

2 Comments:
At 11:47 e.h.,
Nafnlaus said…
Tvær Esjugöngur á innan við viku, glæsilegur árangur og flottur tími:) Þú verður búin að klára Laugaveginn áður en langt um líður.
At 1:14 e.h.,
Ég sjálf said…
Takk Ásta!
Kannski ég fari einn daginn.
Fæ ég þá að leita ráða í viskubrunn þinn?
Skrifa ummæli
<< Home