Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

laugardagur, desember 23, 2006

Jólin eru að koma :-)

Afsakaðu allan þenna reyk inni,
ég var bara að líta til með steikinni
hún er meir og mjúk
alveg eins og hugur manns.

Við hjónin erum búin að æfa þetta lag og getum tekið það hvar sem er (helst eftir tvö rauðvínsglös).
Baggalútur er bara snilld. Ekki hægt annað en að komast í jólastuð við að hlusta á þá.

Eftir allar hremmingarnar (sprungið snjóbræðslurör og vatn úr helv.. dælunni undan vaskinum í kjallaranum yfir allt nýlagða parekttið - allt of löng saga, verðið bara að hringja í mig til þess að fá "full version" ) síðustu daga erum við að verða tilbúin fyrir jólin. Vorum að langt fram eftir kvöldi við að koma lagi á fataherbergið Jebb ég á fataherbergi eins og í bíómyndunum en það er vegna þess að það eru engir skápar í húsinu.
Dagurinn í dag verður notaður í ýmsar útréttingar. Fara í Bónus, fara í kirkjugarðinn, setja upp jólatréð, skreyta pínu meira, ofl. ofl.

Við eigum eftir að hlusta á Þorláksmessulagið svona 10 sinnum dag :-)

Hafið það gott.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home