Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

sunnudagur, nóvember 12, 2006

London :-)

Farin og komin aftur eftir frábæra London ferð. Þetta var húsmæðraorlof með stóru H-i hjá mömmu og mér. Fórum í "nokkrar" búðir, söngleik, út að borða og fleira í þessum dúr.
Mikið svakalega þykir mér gaman að fara í búðir í útlöndum! (Ef þið vissuð það ekki). Allt til í öllum stærðu, þjónstan góð (ekki í mínus eins og hér).
Verst að það má bara fara með eina ferðatösku.
Á heimleiðinni lentum við í 12 tíma seinkun eftir óveðrið hér. Það var upplifun út af fyrir sig. Við áttum flug kl.13.00. Þegar við tékkuðum okkur inn var okkur strax sagt að það væri seinkun til 16.00. Klukkan 16.00 var seinkað til 19.00. Klukkan 20.00 kom upp að seinkunin væri til 23.00. ÚFF. Um kl.23. vorum við kölluð út að hliðinu og það endaði með því að við fórum í loftið 0.30.
Ef einhver vill fá upplýsingar um hvaða verslanir, matsölustaðir eru á Heatrow terminal 1, hafið endilega samband við mig.
Sem betur fer eru Flugleiðir nýbúnir að skipta yfir á terminal1 frá nr.2 þar sem ég fór síðast. Þar er nefnilega ekkert um að vera.

Ég var með langan lista yfir það hvað ég ætlaði að gera á mánudaginn því ég átti vetrarfrí, en dagurinn var ónýtur hjá mér vegna svefnleysis :-/ Finnst Flugleiðir skulda mér einn frídag.

Farin að skipuleggja næstu verslunarferð :-).. .hehe...


0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home