Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

fimmtudagur, ágúst 10, 2006

21/2 dagar eftir

Stundin nálgast óðfluga. Eftir nákvæmlega 4 daga (2 og hálfur virkir) fer ég að vinna aftur eftir sumarfríið. Tilfinningin er bæði góð og ekki svo góð. Mér finnst spennandi að takast á við ný verkefni, nýtt námsefni og unglingana og svo á hinn bóginn finnst mér alveg sérlega gott að vera í fríi með sjálfri mér.
Svona er þetta bara. Ætli maður yrði ekki hundleiður á því að vera ekki í vinnu? Held það.

Ég lærði fullt af nýjum orðum í gærkvöldi. Ég las yfir 25 blaðsíður af lokaverkefni "litla bróður".
Ég var svo fegin þegar ég sá kunnugleg orð eins og lotukerfi. Hugsa sér að litli bróðir manns er að fara í mastersnám til ÚTLANDA!!! Sé fram á góða afsökun til þess að þurfa að fara í heimsókn til Köben í tíma og ótíma (hef reyndar ekki þurft neinar afsakanir fram að þessu).

Við hjónin fjárfestum í glæsilegum reiðhjólum á föstudaginn. Þetta er búið að standa til lengi og hefur undirrituð ekki átt hjól í ca 12 ár. Við erum óþægilega mikið í stíl á þessum hjólum (var einhver að tala um hjón í krumpugalla í stíl?), en samt um leið mjög sportleg.
Nú eru komnir skemmtilegir hlutir á óskalistann: Hjólagrifflur og vatnsbrúsi :-)

Jæja, ekki nema 8 dagar í Reykjavíkurmaraþonið. Er bara spennt að hlaupa og sjá hvað ég get bætt tímann minn frá því í fyrra. Stefni að því að bæta mig um 5 mín. Áfram ég.


Mér finnst Latabæjarjhlaupið sérlega vel til fundið og ætlum við að fjölmenna. Fæ samt nokkra tíma til að jafna mig milli hlaupa. Þetta verður örugglega skemmtilegt. Allaveganna mikil spenna á mínu heimili fyrir þetta hlaup.

Hjólakveðjur......

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home