Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

sunnudagur, júní 25, 2006

Jónsmessa

Út í nót að velta sér upp úr dögginni. Er það ekki málið???

Fór í Jónsmessuhlaupið í gærkvöldi. Þetta er í þriðja sinn sem ég tek þátt í því. Skemmtilegt hlaup og góð stemning. Veðrið í gær var mjög hentugt hlaupaveður :-) fyrir 5 km mína.
Var fyrir ofan miðju í mínum aldursflokki og er bara ánægð með það. Ég ætlaði að hlaupa á aðeins betri tíma en ég endaði á. Ég fékk nokkur olnbogaskot þegar hlaupið var ræst sem sló mig aðeins út af laginu. Fyrir hlaupið hittist hlaupahópurinn minn og tók "létta" upphitun fyrir hlaupið. Ég held því miður að þetta hafi verið aðeins og þung upphitun. En... lélegir íþróttamenn kenna öðrum um, ég hef bætt mig sem er bara flott!!!
Í fyrra var ég búin að mæta á 3 hlaupaæfingar, hljóp 3 km skemmtiskokk í Jónsmessuhlaupinu og
ætlaði varla að hafa það af. (Stundum þarf ég að minna sjálfa mig á að líta á björtu hliðarnar).

Á morgun verður löng og róleg æfing... víííí....

Sumarfrí fjölskyldunnar er tæknilega séð byrjað. Við erum með langan lista sem fjölskyldumeðlimi langar til að gera.
Þar á meðal eru skriljón sundferðir og gönguferð á Esjuna. Sjáum hvað tvö 4 ára börn komast langt upp.

Góða helgi :-)

1 Comments:

  • At 7:17 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    þú ert ógeðslega dugleg að vanda :)

     

Skrifa ummæli

<< Home