Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

mánudagur, maí 15, 2006

Glitnir

Á morgun ætlar mín að byrja að hlaupa aftur í hlaupahópi Glitnis. Þetta verður sama fyrirkomulag og í fyrra. Mæta 2x í viku og svo hlaupa 2x í viðbót á eigin vegum.
Vegna heilsufarsástæðna hef ég ekki getað hreyft mig neitt að ráði síðust 2 vikur´en nú stendur allt til bóta.
Það tók mig heillangan tíma að peppa mig upp í hlaup í gær, en ég druslaðist út. Hljóp án vandræða Grafarvogshringinn á 27 mín. Sá ekki stjörnur og fékk ekki blóðbragð í munninn. Mæti galvösk á morgun :-) Gaman gaman. Er sko alveg viss um að ég eigi eftir að hlaupa betur með I-podinn. Setti meira að segja 20 og eitthvað ný lög inn á í gær í runner2 folderinn minn.

Hlaupamont kveðjur....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home