Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

þriðjudagur, mars 14, 2006

Heppin eða óheppin?

Fékk póst í dag frá BA (British airways) um að ég hefði unnið ferð fyrir 2 í jómfrúarfluginu. Flug og hótel á 4* hóteli í 3 daga. Kampavín við brottför, einn dinner ...... sun-mið
Æði... eða þannig sko. Get ekki notað ferðina :-( Þetta er akkúrat flutningshelgin og svo er ég að fá kennaranema á mánudeginum. ÆJI... ég sem vinn aldrei neitt þarf akkúrat að vinna þegar ég get ekki með nokkru móti notað vinninginn.

Ekki þýðir að gráta Björn bónda. Þetta er nú einu sinni bara London, ég var þarna fyrir ári. (ein að sannfæra sjálfa sig).

Gleðitíðindin eru þau að við fáum húsið afhent á morgun :-) Spennandi!!!

Næstu 10 dagar fara semsagt í málingavinnu og kassaburð. Bara gaman.

2 Comments:

  • At 3:10 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Þið eruð svo ótrúlega heppin í þessari fjölskyldu - það er alveg með ólíkindum!! Verð samt að segja að úr því að þú getur ekki notað ferðina hefði sennilega verið best að vinna hana ekki, þetta er svo rosalegt svekkelsi...!

     
  • At 3:57 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Það væri gaman að vera þarna með ykkur. Ég hef alltaf verið ágætur í kassaburði eins og ég fæ að reyna eftir tæpa 3 mánuði.

    Gylfi

     

Skrifa ummæli

<< Home