Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

þriðjudagur, febrúar 14, 2006

Hlaupi hlaup :-)

Fór út að hlaupa í gær :) Þokkalega ánægð með mig því ég fann það að ég hef engu gleymt. Hef bara verið að hlaupa á bretti síðan í haust. Fór þessa sömu leið um páskaleytið í fyrra. Þá var ég að hefja hlaupaferilinn... hóst.. hóst... Viðurkenni hér að ég var nær dauða en lífi eftir fyrstu brekkuna (eiginlega hæð). Fann blóðbragð í munninum og hjartað slá í höfðinu.
Í gær fór ég þessa leið eins og ekkert væri.

Ekki skemmdi fyrir að eiginmaðurinn þekkir spúsu sína vel og keypti handa mér I-pod nano í útlöndum. Var búin að búa til 1 hlaupalagalista. Ef einhver er með ábendingar um góð æfingalög vinsamlegast látið mig vita því ég er svo lengi að finna lög til þess að hlusta á.
Nú vantar mig bara armband svo ég geti spókað mig með þetta í WC.
Bara svöl!!!

Mont kveðjur frá mér.

2 Comments:

  • At 12:06 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ég mæli með nógu miklilli fjölbreytni, ég hlusta á EGÓ, Metallica, Bon Jovi, Björk, ABBA, Vilhjálm Vilhjálmsson og ýmislegt fleira, því fjölbreyttara, því betra. Gott hjá þér að vera farin að hlaupa.

     
  • At 9:20 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    U go girl !!!

     

Skrifa ummæli

<< Home