Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

þriðjudagur, nóvember 22, 2005

Robbie..

Reyndi í marga klukkutíma í gær að fá miða á Robbie Williams tónleika í Köben næsta sumar.
Hann verður með tvenna tónleika 6. og 7.júlí í Parken (been there).
Því miður hrundi miðasölukerfið og margir Danir hundfúlir. Ég fór í röð á netinu og eftir 5 klukkutíma datt mér í hug að kíkja á billetlugen og þá kom fram að það var uppselt. Ég skráði mig samt á biðlista en það er jafn líklegt að ég fái miða eins og að vinna í lottói.
Það var svo hrikalega gaman á U2 tónleikunum að nú langar mig aftur á svona stórtónleika. RW er örugglega sjúklegur á tónleikum. Las í Mogganum í morgun að það hefði selst upp á 3 tímum á tónleikana hans á næsta ári. Oh well. Kannski koma einhverjir frægir hingað. RW kemur pottþétt ekki því það fauk svo illilega í hann þegar kom hingað fyrir nokkrum árum að hann hefur eflaust ekki áhuga á að koma aftur.

Ég náði í miða á Frostrósir í Laugardalshöll 10.des.

Bæjó... tónleikasjúklingurinn :-)

2 Comments:

  • At 3:00 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Það verður semsagt fjör hér hjá gamla settinu ef þú færð miða, hehe

     
  • At 11:51 e.h., Blogger Ég sjálf said…

    Neinei.. krakkarnir koma bara með og verða hjá hinum afa í pössun.
    En eins og ég segi það eru stjarnfræðilega litlar líkur á að ég nái í miða.

     

Skrifa ummæli

<< Home