Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

mánudagur, október 10, 2005

Mánudagur

Jamm, mánudagur enn og aftur. Vegna takmarkaðs svefns aðfaranótt sunnudagsins vantaði mig svo sem eins og 2 tíma í morgun þegar ég vaknaði.
Við hjónin vorum á glæsilegri árshátið VISA sem haldin var á Hótel Selfoss. Frábært að gista á hóteli en eini mínusinn var að þurfa að rífa sig á lappir til þess að missa ekki af morgunmatnum. Ég tímdi alls ekki að
sleppa honum. EN... þetta var góð tilbreyting að gista "úti á landi" og skemmtileg árshátið :-) Þar var eitt fyndnasta skemmtiatriði sem ég hef orðið vitni að. Af því að ég hef svo rosalega marga lesendur að blogginu ætla ég ekki að kjafta því til þess að eyðileggja ekki fyrir öðrum sem e.t.v. lenda í því sama seinna.


1 Comments:

  • At 3:31 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Frábært að ég komist nú á blogg svæðið þitt. Nú getum við tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið með að vera alltaf að skrifast á eins og í Álftó forðum.

     

Skrifa ummæli

<< Home