Allt tilbúið
Allt er að verða tilbúið fyrir morgundaginn.
Nú á ég bara eftir að hlaupa.
- Búin að þvo hlaupagallann,
- búin að fara í pastaveisluna
- búin að sækja keppnisgögnin
- búin að biðja guð um meðvind
- búin að setja úrval af bestu hlaupalögunum á mp3 spilarann
- búin að borða orkusúkkulaði sem heitir því skemmtilega nafni Snickers marathon.. það hlýtur að gefa mér mikla orku því annars hefði ekki verið að gefa það í pastaveislunni
- búin að hlaupa leiðina í huganum
- búin að keyra leiðina
Nú á ég bara eftir að hlaupa.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home