Önnur vika..
í sumarfríinu er að klárast. Ég get svarið það hvað tíminn líður hratt. Ég er nú búin að hafa nóg fyrir stafni: T.d. fara 3x út að borða í hádeginu, fara í WC, útrétta fult, slappa af. Ég er ekki einu sinni búin að hafa tíma til að taka skápana í gegn eins og ég geri venjulega í upphafi sumars. Kemst ekki í það á mánudaginn því þá fer ég til tannsa. Semsagt nóg að gera :-)
Við skötuhjúin fórum í Jónsmessuhlaupið í gærkvöldi. Fórum heila 3 km, en ég sá svo eftir því að hafa ekki farið 5 því ég hefði sko alveg getað það. En það var bara gaman að vera með. Vorum svo fljót að við vorum fyrst í heita pottinn eftir hlaupið.
Annars varðandi afrek mín á hlaupanámskeiðinu eru alveg þokkaleg. Ég geri það sem mér er sagt að gera og lifi það alveg af (get hlaupið 5km án þess að deyja). Markmiðið mitt er ennþá að hlaupa 10km á innan við klukkutíma. Það eru ennþá 2 mánuðir til stefnu þannig að ég hef nægan tíma til bæta mig!
Letikveðjur....

1 Comments:
At 8:48 e.h.,
Nafnlaus said…
Öfund í morgundaginn. Ef þú hittir Simon le Bon annað kvöld, nennir þú þá að segja honum að systur þinni hafi alltaf fundist hann sætastur :)
Skrifa ummæli
<< Home