Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

föstudagur, júní 10, 2005

Gat það

Mér tókst þetta :-)
Hljóp 5 km og var ekki síðust.. hehe... Ég fór í miðhópinn því ég tel mig í þokkalegu formi, er að æfa en hef kannski ekki hlaupið svo mikið úti.
Anyway... þetta var helv.. erfitt en sem betur fer lá leiðin niður á við síðasta spölinn. Ég var ferlega stolt af sjálfri mér að hafa gert þetta. Hugsa að ég mæti aftur á þriðjudaginn og býst meira að segja við því að ég fari eftir hlaupaáætluninni sem kemur í pósti til mín á morgun.
Góða nótt,

2 Comments:

  • At 4:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Þú ert málið. Ég hef þol á við flóðhest. Ég þarf meira að segja að fara hægt fram úr á morgnana til þess að ofreina mig ekki.

     
  • At 1:38 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ég vissi ekki að þú hefðir farið í Kvennahlaupið!! Ég tek hattinn ofan af þér fyrir að afreka það.

     

Skrifa ummæli

<< Home