Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

þriðjudagur, apríl 12, 2005

Veikindi...

Það kom að því. Hálsbólga mætt í minn háls, ég sem verð ALDREI veik. Mér finnst alltaf jafn furðulegt að fá hálsbólgu í restarnar af öðrum hálskirtlinum. Glatað. Það er víst ekkert óalgengt að þetta ógeð geti vaxið aftur eftir að þeir eru teknir.
Ég er sem betur fer ekki illa haldin, er á fótum.
Við mæðgurnar erum heima því hún er að jafna sig eftir hræðilega pest;skarlatssótt. Ég held ég hafi aldrei séð hana eins veika og hún var á laugardaginn. Hún er komin á pencilín og er á batavegi.
Ótrúlegt hvað mér finnst ég ómissandi í vinnunni. Hugsaði í morgun þegar ég vaknaði, æ ég mæti bara og fer heim ef ég verð eitthvað slöpp. Það fer allt í rugl þegar kennarinn mætir ekki. Einhver að kenna eitthvað. Svo ákvað ég að hugsa fyrst og fremst um sjálfa mig hringdi mig inn veika. Það er ekki eins og ég þurfi að vera með móral. Mig er ekki búið að vanta mikið í vetur. Ekki eins og við er að búast af móður með 2 leikskólabörn.

Kveðja, "sjúklingurinn"

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home