Blogg
Ég hugsa að ég leggi bloggsíðuna á hilluna. Eftir að Stebbi litli bróðir minn (hann er reyndar bara 20 cm hærri en ég) fór að blogga hef ég fyllst þvílíkri minnimáttarkennd að ég hef barasta ekki getað skrifað neitt. Hann leynir svo sannarlega á sér drengurinn. Bullið sem vellur upp úr honum, vissi ekki að hann ætti þetta til.
Inga er líka að blogga og hún gerir það líka vel. Mjög miklar pælingar hjá henni í bland við minna gáfulegri hluti.
Svo kem ég elsta systirin, lífsreyndust og klárust.... með glataðasta bloggið. Hver ætli nenni að lesa um þreytta húsmóðir/kennslukonu sem kemur endurnærð úr andlitsbaði??? Ekki ég. Hver ætli nenni að lesa um húsmæðraorlof til London??? Ekki ég. Hver nennir að lesa nokkuð af því sem ég skrifa???? Ekki ég.
Ég legg ekki árar í bát, mótlætið herðir mig bara....
Adjö,

1 Comments:
At 1:51 f.h.,
Nafnlaus said…
Hvaða vitleysa. Ég kíki á bloggið þitt á hverjum degi :)
Skrifa ummæli
<< Home