Föstudagur
Föstudagur, júbbííí!!! Nú er að styttast í jólafríið. Bara jólaballið eftir.
Dagurinn í dag var alveg ágætur. Ég var eiginlega í kirkju allan daginn. Árgangurinn var að sýna jólahelgileikinn í dag í Grensáskirkju. Þau sungu svo vel og þetta heppnaðist fullkomnlega.
Í annarri sýningunni voru áhorfendur úr Safamýrarskóla. Ég viðurkenni það alveg að nokkur tár láku. Sem betur fer sat ég aftast en það voru nokkrir englar sem tóku eftir því að ég tók af mér gleraugun. Æ, mér finnst bara allt í lagi að sína tilfinningar.
Ég fór að hugsa hvað ég væri óendanlega heppin að eiga heilbrigð börn. Ég held að við gleymum að þakka fyrir það í daglega amstrinu.
En krakkarnir mínir stóðu sig eins og hetjur og héldu alveg sínu striki þrátt fyrir nokkur skrítin hljóð í áhorfendunum.
Eftir þrjár sýningar á helgileiknum var smá hlé svo var jólaball hjá leikskólanum í safnaðarheimilinu.
Ég á eftir að jólast mjög lítið. Þetta reddast alveg :-)
Nú er ég bara að bíða eftir gardínunum sem ég pantaði fyrir löngu síðan. Ég ætla að fá þær fyrir jól.
Væmkveðjur frá mér í dag.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home