Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

laugardagur, desember 11, 2004

2 vikur

Jei... tvær vikur til jóla. Ég var að kíkja yfir jólaminnislistann minn og ég er bara í ágætum málum. Ég á bara eftir að kaupa nokkrar jólagjafir og búa til jólaísinn. Ég er meira að segja búin að fá jólakortin og ég held svei mér þá að ég hafi aldrei verið svona snemma í því. Kannski ég byrji að skrifa um helgina.

Ég er búin að vera í leikfimislægð síðustu vikuna. Þetta er nú ekki nógu gott. Ég sem er nýbúin að fara í mjólkusýrumælingu og kom svo vel út úr henni. Ég er sko efni í ágætis hlaupara. Það skyldi þá aldrei vera að ég gæti verið svona hlaupapæja.... Svona sem ég hef verið að öfundast út í. Svona týpa sem er úti að hlaupa á jóladagsmorgun þegar aðrir sitja með nammiskálina uppi í sófa í náttfötunum að lesa nýja bók.
Nú vantar mig bara púlsmæli! (Er á jólaóskalistanum mínum).

Jæja, ég ætla að horfa á eitthvað.

Gurdan jólagrís

P.S. Það er ekkert grín að vera svín og vera étin á jólunum!!!
Þessi er alltaf góður :-)


1 Comments:

  • At 4:33 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Tvö svín voru að tala saman á aðventunni þegar annað segir við hitt "Trúir þú á líf eftir jólin" - hehehehe

     

Skrifa ummæli

<< Home