Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

fimmtudagur, febrúar 03, 2005

U2

Fréttir dagsins: Ég ásamt maka, systur og mági erum búin að kaupa miða á eina bestu hljómsveit allra tíma; U2. Ég er svo sniðug að vera í aðdáendaklúbbnum og gat keypt miða í forsölu (liggaliggalái). Gekk frá kaupunum í gærkvöldi. Ánægju straumur fór um mig þegar ég prentaði kvittunina út og sá : Enjoy the show!
31.júlí verð ég í Parken í Köben í brjáluðu stuði á tónleikum :-) og dagana þar á eftir verð ég að spóka mig um á Strikinu með eiginmanninum og börnin heima á Íslandi.

Ég er bara í svaka utanlandsferðaskipulagi. Fer til London í húsmæðraorlof eftir nákvæmlega 6 vikur :-) Það verður örugglega alveg æðislegt. 3 dömur saman (eða stelpur??).

Annars gengur lífið sinn vanagang.

Bæjó, U2 aðdáandi #1




0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home