Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

laugardagur, mars 05, 2005

Áfram

Ég sé að það eru a.m.k tveir sem skoða bloggið mitt. Tveir sem þora að viðurkenna það. Ég held því ótrauð áfram.

Lenti í svaka púli á fimmtudaginn. Fékk það staðfest að ég er rosalega sterk með gott úthald. Bar 8 pakka af parketi, 1 flísapakka, 3 rúllur af undirlagi upp á 3. hæð. Hver parketpakki var 24 kg. Með í burðinum voru Eiginmaðurinn, mágurinn og systir. Ég gaf sko karlmönnunum ekkert eftir og var mjöööög ánægð með sjálfa mig á eftir. Fékk pínu strengi í handleggina og einn marblett á hægri mjöðm. Púlið í WC er greinilega að borga sig. N.B. var búin að taka þríhöfðann og brjóstvöðvana á miðvikudaginn. Monti monti monti.
Hringið bara í mig þegar ykkur vantar aðstoð við flutningar, biðjið mig fyrst!

12 dagar í London ferðina :-) Jibbíííí.

1 Comments:

  • At 2:38 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ég held að málið sé, að spara pening með því að sleppa ræktinni og svo bara borga einhverjum aulum fyrir að bera svona dót þegar maður þarf þess. :) Nei nei, ég segi bara svona.

     

Skrifa ummæli

<< Home