Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

laugardagur, mars 12, 2005

Skyr, jógúrt ofl.

Jæja, ein í kotinu með börnunum. Bóndinn á tölvusýningu í Hannover. www.cebit.de
Það er nú ekki eins hrikalega erfitt að vera ein með börnin núna. Þetta er bara ekkert mál!
Svo fer nú að styttast í mitt "orlof". Bara 5 dagar þangað til! Jei....

Ég er búin að taka þátt í verðstríðinu mikla sem er búið að standa síðustu viku. Fór í Bónus á fimmtudaginn, keypti helling af skyri, skyr.is, cereousi, jógúrti, vínberjum ofl. Fyllti 3 poka fyrir utan morgunkornið. Allt þetta kostaði 2500 kall! Svona á þetta að vera.
Ég horfði á sumar konur vera með heilu körfurnar af "verðstríðsvörum" og það lá við slagsmálum út af tveimur tveggja lítra kók flöskum. En það sem ég var að spá er hvaða pláss heufr venjulegt fólk (ja, eða venjulegir ísskápar) fyrir allt þetta? Þó þetta hafi verið næstum því gefins keypti ég bara það sem ég sé fram á að verði borðað, og n.b. það er pláss í ísskápnum mínum fyrir ýmislegt annað.


Adíos amígos....
Bónusgellan

1 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home