Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

miðvikudagur, maí 11, 2005

Nýtt met

Ég held svei mér að ég sé að slá nýtt met. Hálsbólga #3 er mætt á svæðið. Get svo svarið það. Ég kláraði lyfjaskammtinn minn á föstudaginn og fann fyrir einkennunum á sunnudag. 3 ofurpencilín skammturinn kominn í lyfjaskápinn. Nú er ég búin að panta tíma hjá sérfræðingi í næstu viku. Ætli það þurfi ekki að rífa þennan þrjóska hálskirtil úr mér. Hugsið ykkur.. búið að skera hann einu sinni í burtu og hefur svo tekið sér 14 ár í að vaxa aftur. Veiiii eða þannig sko. Fór nefninlega í hálskirtlatöku fyrir 15 árum (finnst samt eins og það hafi verið í gær) og það er ekki skemmtileg aðgerð, en ég læt mig hafa það.

Við hjónakornin fórum á djammið á laugardagskvöldið. Fengum næturpössun (takk elsku besta systir mín), fórum út að borða, bjórkvöld og svo síðast en ekki síst: Ball með Sálinni. www.salin.is
Það er búinn að vera draumurinn í mörg ár að komast á Sálarball. Það var alveg ferlega gaman. Verst hvað var troðið. Kom heim með marblett á augabrúninni, á hægri ristinni og nokkur sár á fótunum. Slapp alveg við brunagöt.
Fyndið hvað fólki finnst það merkilegt að við förum tvö saman út að skemmta okkur. Við hljómum eins og risaeðlur. Útdauðar lífverur. Mæli með þessu.


P.S. Elska þessa setningu: Þú fullkomnar mig....... Elska samt meira þessa setningu með U2: Sometimes you can't make it on our own..... Varð að koma því að U2 er auðvitað í fyrsta sæti þó svo að ég hafi farið á Sálarball.
Samkvæmt talningu systur minnar eru ekki nema 81 dagur í tónleikana.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home