Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

sunnudagur, júlí 10, 2005

Hvar er sumarið???

Ég er með hugmynd að breyttum texta við þekkt Sálarlag: Hvar er sumarið? Hvar ertu sólin mín og hiti.. o,ó sumarið???
Ég get svarið að ég man ekki lengur hvenær voru sól og sumardagar. Man í fjótu bragði eftir 17.júní. Veðurspá vikunnar vekur ekki hjá manni vonir um betri tíma.... ó nei, bara rigning. Jæja, ég er hætt þessari svartsýni, sumarið er rétt að byrja og nú fer að styttast í sumarfrí fjölskyldunnar.

Ég er búin að vera mjög dugleg í hlaupunum svo ég monti mig nú aðeins. Ég er svo stolt af sjálfri mér fyrir að geta þetta. Það er líka svo gaman þegar maður finnur mun. ´
Nú er hlaupajakki efstur á óskalistanum. Helst með litlum vasa fyrir bíllykilinn/húslykilinn. Það er meiriháttar vesen að koma bíllyklinum fyrir þegar enginn er vasinn á fötunum (giskið þið nú).

Bæjó spæjó..

2 Comments:

  • At 3:28 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Sko ... komdu bara til okkar í Svíþjóð. Við erum gjörsamlega að stikna úr hita ... orðin hundleið á þessari sól og biðum bara eftir vetrinum.

    OK.

    Kannski ekki alveg. En það er allavega mikið af sól og mikið af hita. Full mikið á stundum. Sofum með alla glugga galopna og viftur á fullu (fyrir þá sem þola að sofa með viftur inni hjá sér).

    Sjáumst í Köben !!

     
  • At 5:57 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    vá ég er svo sammála þessu um veðrið- og um leið og ég er ekki í fríi lengur- þá kemur sól!! Týpískt.
    Vonandi hefur þú það gott í Hrísey, mamma og pabbi voru víst búin að hóta því að kíkja í heimsókn- þau eru á leiðinni til ykkar núna.
    11 dagar í tónleika þig líka (U2), þetta verður æði!

     

Skrifa ummæli

<< Home