Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

mánudagur, júlí 04, 2005

Duran, wic wam og ....

Ég er búin að ná mér eftir Duran Duran tónleikana. Vá hvað var gaman!!!! Ég hef alltaf átt í erfiðleikum með að skilja orðið Nostalgía, en nú hefur það orð algjörlega náð að festa sig í hausnum mínum. Ef þessir tónleikar voru ekki frábært dæmi um nostalgíu þá veit ég ekki hvað.
(Nostalgía: Ljúfsár söknuður eftir liðnum tíma).
Þegar gömlu goðin stigu á svið fékk ég gæsahúð! ÓMG..... hvað ég er búin að þrá að heyra röddina í Simon le Bon í mörg ár!!! Hehe... ok.. er að ýkja smá.
Þetta var semsagt meiriháttar gaman og þeir tóku öll gömlu góðu lögin. Ég hefði samt alveg verið til í að komast aðeins nær sviðinu, en ég var bara í B-svæði.

Á laugardaginn fór svo familían í Smáralindina að sjá norsku rokkarana í Wic wam... þeir voru líka æðislegir. Svipurinn á krökkunum var líka óborganlegur. Þau kunna nefninlega Eurovision lagið þeirra. Við ölum börnin okkar í upp því að hlusta á fjölbreytta tónlist. Allt frá trompetleik til rokktónlistar.

Samkvæmt nýjustu talningu verð ég á U2 tónleikum eftir nákvæmlega 27 daga. Ég fer semsé á tónleikana í þessum mánuði :-)

Tónlistarkveðjur...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home