Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

sunnudagur, ágúst 21, 2005

Stór dagur :-)

Í gær var svo sannarlega merkilegur dagur á íþróttaferlinum. Ég hljóp 10km í Reykjavíkurmaraþoninu!!! Náði því á tíma sem ég bjóst við. Einum klukkutíma og 1 mínútu. Á að vísu eftir að sjá tímann á www.marathon.is, en þetta er tíminn sem ég mældi.

Ég er svo ánægð með sjálfa mig að það nær engri átt (hættu að lesa hér ef þú vilt ekki heyra meira grobb). Ég kom hlaupandi í mark með bros á vör með ofurskammta af adrenalíni í æðunum. Þetta var alveg frábært :-)
Ótrúlega gaman að sjá árangur erfiðisins.
Nú er ég alveg harðákveðin í að halda áfram hlaupunum. Hef hugsað mér að hlaupa 2x í viku í vetur og æfa svo í WC líka.
Þar sem ég á afmæli á næstunni er búið að lofa mér nýjum hlaupaskóm í afmælisgjöf. Skórnir mínir (15.000 krónar Asics skór) eru barasta búnir. Ég á hlaupabuxur, nú vantar mig bara hlaupajakka.

Hlaupakveðja

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home