Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

mánudagur, maí 08, 2006

Maí

Kominn tími á nýtt blogg.. er það ekki? Er alltaf á leiðinni að skipta um síðu en svo enda ég bara hér.
Nú verða sagðar fréttir:
Ég varð móðursystir í annað skiptið á fimmtudaginn :-) Systir mín valdi auðvitað flottustu dagsetninguna sem var í boði í maí: 04.05.06. Lítill prins er fæddur og kannski óþarfi að taka það fram að hann er algjör rúsína.


Nú er bara mánuður í skólaslit sem þýðir að næstu vikur verða frekar þéttar. Alltaf nóg að gera í skólalok en samt skemmtilegur tími því það styttist í sumarfríið. Ég er því miður að fara að skila af mér besta bekk sem til er. Veit ekki alveg hvað tekur við en það verða einhverjar smá breytingar.

Ég er nýbúin að uppgötva áhugamál sem ég vissi ekki að ég hefði: Garðrækt..Ég bíð spennt eftir að sjá hvað kemur í ljós í garðinum mínum, búin að hreinsa beðin, hlakka til að kaupa sumarblóm. Í gær voru keypt garðhúsgögn þannig að þetta er allt að koma.
En mikið svakalega er mikið af kóngulóm út um allt! Þetta eru ótrúleg vinnudýr... spinna og spinna út í eitt. Verst finnst mér þegar ég labba í gegnum vefinn... jakk..en annars eru þær ekkert fyrir mér.

Jæja, ætla að verða duglegri að blogga....

Bæjó..... blómálfurinn


0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home