Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

mánudagur, maí 22, 2006

Bróderí

Hlaupaferillinn fór í pásu þessa vikuna. Ég þurfti að fara í lýtaaðgerð á miðvikudaginn og læknirinn harðbannaði mér að fara í leikfimi. Ég spurði hann hvort ég mætti hlaupa og hann sagði nja.... það er ekki gott að svitna, það er alveg eins gott að fara í göngutúr. Best að gera eins og læknirinn segir, vil nú helst ekki fá ljót ör.
Saumarnir verða teknir á miðvikudaginn en ég ætla samt að fara á morgun.

Bara djók.. var ekki í lýtaaðgerð, var samt að spá í að biðja um að strekkja á magaskinninu í leiðinni. Ég er bara 5 fæðingablettum fátækari.

Helgin var fín hjá familíunni. Ég fékk lánaða saumavél hjá mömmu og náði að falda gardínur og laga Rúmfatalagers sænguverin sem krakkarnir eiga. Verkefnlistinn smá styttist. Nú er það næst að bera á pallana, bera á nýja garðhúsgögnin, slá grasið. Við erum nú ekki beinlínis í stuði fyrir útiverkin þegar þessi helv.. kuldi er. Vonandi náum við þessu á fimmtudaginn eða um helgina.

Bless í bili....

1 Comments:

  • At 11:23 e.h., Blogger CarrieB said…

    Oh, sorry I don't understand any word of your post but I enjoy the fact to be read at the other side of our earth...Iceland must be wonderful...

     

Skrifa ummæli

<< Home