Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

föstudagur, maí 26, 2006

X-Ég

Mikið finnst mér gaman að fylgjast með þessari kosningabaráttu. Kosningaloforðin ble....ble...ble... XB er að róa lífróður, eyða miljónum í auglýsingaherferð á einum manni. Svo sýna kosningar að hann er tæpur að vera inni. Verð að taka það fram að hann er gamall skólafélagi minn og ég eyddi heilu sumri í unglingavinnunni með honum. Ég er greinilega núll og nix því hann hefur ekki enn hringt í mig til þess að falast eftir mínu atkvæði.
Sjálfstæðisflokkurinn allt í einu orðinn bleikur... á sá hlýtur að höfða til femínista???

Og þvílík tilviljun að Kópavogsbær og Mosfellsbær sendi "endurgreiðslu" á fasteignagjöldum korteri í kosningar. Frábært!!!

Ég er að spá í að bjóða mig fram árið 2010.
Helstu stefnumálin eru:

Tengja göngustíga borgarinnar saman.
Lestarkerfi
Betri mat í skólana, hagræða í rekstri
Gera Laugarveginn að göngugötu
Koma á fót úrræðum fyrir nemendur með geðraskanir
Setja upp fleiri ruslatunnur
Taka upp sektarkerfi fyrir þá sem henda rusli út um gluggann á bílum
Frítt á öll söfn í Reykjavík
Endurskoða menntastefnu Reykjavíkuborgar frá A-Ö og fá fólk sem er í einhverjum tengslum við skólana að semja hana

Svo myndi ég hafa ýmis gæluverkefni: T.d.

Dýragarð
Vísindasafn
Skautasvell á Ingólfstorgi á veturna
Stóran og flottan skemmtigarð = Tívolí


Ég tek það fram að ég var ekki lengi að skutla saman einum svona lista.

Kosningaloforðslistinn fyrir Alþingiskosningarnar 2008 verða aðeins að bíða. Er að vinna í honum.

Ég mun mæta á kjörstað á morgun og nota minn kosningarétt og sitja síðan límd fyrir framan kosningasjónvarpið.... í alvöru... er ekki að grínast.

X-Ég


3 Comments:

  • At 1:40 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Þú færð mitt atkvæði Greta mín, alls ekki vitlaus kosningaloforð!! Þú gætir svo fengið starfið hans Stefáns J. Hafstein!! Þú gætir nú stefnt að þessu Greta, ekki illa borgað starf.

     
  • At 1:42 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hæ, þú átt mikið af svona "porn" vinum sem commenta stöðugt á síðunni þinni. Getur þú ekki sagt þeim að þetta sé svona "non porn" síða????

     
  • At 3:56 e.h., Blogger Ég sjálf said…

    Er ekki bara gott ef e-r nennir að skoða síðuna..??? hehe
    skil ekki hvað fólk er að commenta á síður sem það skilur ekki bofs í.

     

Skrifa ummæli

<< Home