Sumar?????
Lýst er eftir 10°c hita eða meira. Hlýrri sumargolu og sólarglætu. Ég bið ekki um meira :-/
Ég sendi krakkana í sokkabuxum og kuldaskóm í leikskólann í gær. Þau voru síðan ekki send út því það voru ekki öll börnin sem voru með föt fyrir þennan kulda.
Yngsta stigið í skólanum á að vera út um allan bæ í vorferðalögum en vegna veðurs er búið að fresta þeim þangað til í næstu viku. Þetta er náttúrulega ekki hægt.
Lét mig hafa það að hlaupa í gær. Mikið svakalega er erfitt að hlaupa í mótvindi, en ég kláraði hringinn og var frekar ánægð með mig!!!
Annars er frídagur framundan á morgun... vííííí... fer í óvissuferð með vinnunni á eftir en við vitum samt smávegis af óvissunni til þess að vera vel klædd.
Spakmæli dagsins: Á eftir kulda kemur hiti.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home