Sól og blöðrur
Mikið er gaman að vera til í dag. Sólin loksins farin að láta sjá sig :-) Því miður eru veikindi á heimilinu þannig að dagsferð fjölskyldunnar frestast aftur.
Ég hljóp 8 km í gær. Nokkuð gott hjá mér svo ég grobbi mig aðeins.
Ég er því miður að deyja í fótunum. Blöðrur... djö.... nýju Nike skórnir hafa ekki alveg verið vinir mínir, en það getur verið að ég þurfi að kaupa mér eitthvað innnlegg í þá. Þeir eru góðir en aðeins of víðir á mér, lengdin er fín.
Hef verið að hlaupa í gömlu asics skónum en þeir voru vondir við mig í gær. Gæti verið að ég þyrfti að fá eithverja aðstoð við að velja rétta skó. Nenni þessu ekki lengur.
Jæja, farin út í góða veðrið að klippa dauðar trjágreinar.
P.S. Skil núna hvers vegna ég fékk nokkur olnbogaskot í Jónsmessuhlaupinu. Ef þið skoðið myndir frá startinu sést undirrituð fremst í flokki. Fyndið.....þeir sem hafa verið fyrir aftan mig hefur legið svona rosalega á að komast áfram.

1 Comments:
At 10:35 f.h.,
Nafnlaus said…
Farðu til Daníels Smára í Afreksvörum í Síðumúla. Hann er frábær, er með ódýra hlaupagreiningu, er hlaupari sjálfur og mælir pottþétt með bestu skónum fyrir þig, hvort sem hann er að selja þá eða ekki:) Gangi þér vel.
Skrifa ummæli
<< Home