Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

miðvikudagur, júlí 19, 2006

Sól sól skín á mig...

Ský, ský burt með þig.....
Það kom að því. Hélt að ég sæji ofsjónir í morgun þegar ég sá sólargeislana troða sér á milli rimlanna. :-).
Krakkarnir og ég áttum góðan dag. Fór með þau í Sportlandið í morgun við miklar vinsældir. Þau fá að fara svo sjaldan þangað að þeim þykir ægilega mikið sport að fara.
Uppgötvaði of seint að ég hefði getað tekið sundfötin með. Geri það næst. (á föstudaginn??)

Ég var með nýjan vatnsbrúsa í dag (takk Glitnir). Var búin að hlaupa í 10-12 mínútur á ágætum hraða og þurfti að súpa á vatninu. Það vildi ekki betur til að ég hef ekki smellt lokinu á nógu vel þannig að það sullaðist vatn út um allt! Ég var bara svöl og lét eins og ég hefði oft lent í þessu áður, þurrkaði sullið og hélt áfram. Er þetta ekki dæmigert fyrir mig???

Ég má til með að mæla með bók sem ég var að klára. Flugdrekahlauparinn. Þetta er ein magnaðasta bók sem ég hef lesið í langan tíma. Ég hefði aldrei lesið hana nema að því að mamma sagði mér að lesa hana. Las aftan á hana.. eitthvað um vináttu og Afganistan, það hefði verið nóg til þess að ég hefði aldrei lesið hana.
Semsagt: Frábær saga, sérstaklega vel skrifuð og hefur áhrif á lesandann. Ef þú lest eina bók á ári, lestu þessa.
Ég er að hugsa um að lesa James Patterson næst, svona heilalausa spennusögu.

Kveðja til allra með sól í hjarta :-)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home