Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

mánudagur, ágúst 21, 2006

Aumir vöðvar

Náði að hlaupa 10km. Ég stóð mig bara nokkuð vel þó svo að ég náði ekki tímanum sem ég setti mér. Ætlaði að hlaupa á 57mínútum. Hlaupið byrjaði vel, hélt mínum hraða og ég var í góðum gír. Þegar ég kom út á Norðuströnd var eins og ég hlypi á vegg (eða kannski var það rokveggur, ég veit það ekki). Ég átti eitthvað svo erfitt með mig frá 6-8km. Það var töluverður vindur en það var aðallega að sjá þessa löööngu leið sem var framundan. Ég náði að herða mig upp og komast í mark undir klukkutímanum. Ég bætti mig um 3 mín frá því í fyrra :-). Ég held bara áfram að bæta mig næst. Nú ér ég búin að setja mér ný markmið. Ekkert verður gefið upp hér nema það að ég ætla að halda áfram að hlaupa í vetur.

Við fórum svo í Latarbæjarhlaupið. Get svo svarið það að ég er aumari í líikamanum eftir það hlaup en eftir 10km. Ég vaknaði í morgun stíf í hálsinum með eymsli í herðunum. Það er ekkert smá átak að hafa 17 kg á öxlunum á háhesti.
Krakkarnir skemmtu sér hið besta og þetta var skemmtilegur dagur, er það ekki fyrir mestu?

Sé fram á annasama viku í byrjun skólaársins, undirbúning kennslu ofl. ofl.

Góða nótt.

2 Comments:

  • At 1:24 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    ég sé að þú hefur verið dugleg að skrifa. Nú lofa ég að kíkja oftar hingað inn.... Knús,
    Inga

     
  • At 12:35 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Þú ert rosalega dugleg að blogga!!! Vá maður!!

     

Skrifa ummæli

<< Home