5 dagar
Bara 5 dagar til jóla. Þrátt fyrir fögur fyrirheit er ég ekki búin að kaupa allar jólagjafirnar (vantar 4). Ég er heldur ekki búin að búa til jólaísinn en ég er búin að kaupa allan rjómann sem fer í hann. Ég er langt komin með jólakortin.Er þetta ekki bara allt í lagi.
Byrja í jólafríi á morgun eftir hádegi þannig að þá hef ég nægan tíma til að dúlla mér að kaupa afganginn.
Skyrgámur fékk heldur betur góðar móttökur þegar hann kom til að setja í skóna í nótt. Fékk skyr frá Elísu (skyr.is með perubragði, kom ekki annað til greina) og skilaboð frá syninum. Hann langar svo mikið í eitthvað pödduslím (mjög jólalegt en hann er allur í slímum; prumpslími, pödduslími og ég veit ekki hvað). Ætli bjúgnakrækir verði ekki að fara í Kringluna á eftir og finna þetta pödduslím?
Njótið síðustu dagana fyrir jólafrí :-)

1 Comments:
At 8:34 e.h.,
Nafnlaus said…
Fór í Kringluna, eggin uppseld en stelpan var mjög indæl og hringdi út um allt. Fékk svo síðustu tvö í Mál og Menningu á Laugavegi. Sá alls konar slím þar. Kærar þakkir fyrir aðstoðina.
Skrifa ummæli
<< Home