Stúfur
Stúfur kemur í nótt :-) Mikið er þetta nú skemmtilegt hlutverk sem foreldrar hafa. Ég er alveg viss um að foreldrar hafa fundið upp þetta gefa í skó dæmi. Þvílíkt tak sem þessir jólasveinar hafa á börnunum.
Pirr dagsins: Einhver jólasveinn keyrði á bílinn fyrir utan World class í Laugum í hádeginu á mánudag. Sá hinn sami er ekki enn búinn að hafa samband (sénsinn). Hvaða fífl gerir þetta? Þetta er ekkert lítil beygla! Samkvæmt mínum útreikningum hlýtur þetta að hafa verið jeppi. Bara fúlt.
Stefni að því að vera búin að öllu jólastússi næstu helgi. Ætla meira að segja að skella í jólaísinn, klára jólakort og allt það. Svo er bara að njóta lífsins.
Þetta verður væntanlega síðasta almennilega jólafríið mitt í langan tíma. Jebb, mín bara að fara að breyta til.
Jólasveinakveðja :-)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home