Magapest..
Úff dagur 4 í veikindum. Ég hef ekki orðið svona veik í háa herrans tíð. Ég var svo "þreytt" á laugardaginn að ég var með beinverki. Hehehe.. ákvað ekki að mæla mig fyrr en á laugardagskvöldið og var þá komin með háan hita. Fatturinn dálítið langur.
Anyway.. ég er búin að vera með magapest frá helvíti og háan hita með. Gríðarlega skemmtilegt eða þannig.
Ótrúlegt hvað orkan er fljót að fara þegar mataræðið er sama og ekki neitt. Er alveg eftir mig þegar ég labba milli hæða.
Vonandi er þetta að verða búið.
Í dag eru bara 19 dagar til jóla. Ég sé ekki fram á að:
Föndra fyrir jólin - aldrei þessu vant
Baka 7 sortir
Gera konfekt
Gera heimatilbúin jólakort
Kaupa kertin í aðventukransinn minn fyrr en næstu helgi
Get þó státað mig af því að hafa sett upp pakkadagatal fyrir krakkana í fyrsta skipti.
Ég saumaði það út þegar ég var í barneignafríi (fyrir óralöngu síðan) og gleymi því aldrei hversu mikil vinna fór í það.
En mikið svakalega eru krakkarnir ánægðir með þetta! Finnst þetta allt svo spennandi :-)
Í staðinn:
Fá allir keypt jólakort,
verða bakaðar piparkökur þegar húsmóðirin kemst á lappir
Lion bar kökurnar verða líka bakaðar,
Konfektið verður keypt
Eiginmaðurinn er búinn að hengja upp seríur á húsið
Hann er líka að mála í kjallaranum og ætlar svo að parketleggja vinninginn minn (sjá færslu á undan)
Bless í bili,
Farin að slappa af :-)

1 Comments:
At 10:12 e.h.,
Nafnlaus said…
Láttu þér batna Greta mín! Ég sé að þú ert búin að vera dugleg að skrifa- ekki eins og ég.....
Skrifa ummæli
<< Home