Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

þriðjudagur, apríl 24, 2007

Tómstundir barnanna...

Ágætishelgi að baki. Vorum með óvænt "sammenkomst" á föstudagskvöldið. Þar voru mættar mágkonur mínar með mökum og svo býr tengdapabbi hér meðan hann er að vinna á landinu.
Við fengum okkur rauðvín og osta og tókum svo Buzz í playstation. Hver segir að það geti ekki verið gott að eiga playstation?? Við hjónin sigruðum báðar keppnirnar en það þarf alltaf breitt bak til þess að geta tekið commentunum sem maður fær þegar sá sem á leikinn vinnur. En ótrúlega gaman að hittast svona.

B er byrjaður að æfa knattspyrnu. Ég fór með hann á fyrstu æfinguna í síðustu viku. Fram til þessa hafði pabbinn alltaf farið með hann. Þar voru feður í meirihluta að fylgja sonum sínum á æfingu.
Í dag byrjaði svo dóttirin á örstuttu vornámskeiði í Ballett. Þar voru BARA mæður að fylgja dætrum sínum. Að vísu kom einn afi með barn á næsta námskeið á eftir.
.
B var með en ætlaði varla að vilja koma yfir þröskuldinn því að þetta var stelpustaður. En um daginn þegar E kom með í fótboltann langaði hana svo að taka þátt.

Hm..... dálítið fyndið

2 Comments:

  • At 11:36 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    En mikil krúsidúllubörn sem þú átt Greta mín. Góða ferð á morgun! Bara hafðu það ótrúlega gaman.

     
  • At 10:45 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Þetta er gott dæmi um jafnréttisbaráttu kvenna, þeim langar í það sem karlarnir hafa en þeim langar ekkert í það sem konurnar hafa múhahahaha

     

Skrifa ummæli

<< Home