Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

miðvikudagur, janúar 31, 2007

Bloggi bloggi

Halló!
Er með bloggleti. Málið er það að mér finnst annar hver maður vera að blogga. Man ekki hve mörg þúsund eru með mbl. síðu. Mörg blogg eru þrælskemmtileg og fullt af hæfileikaríkum pennum að skrifa en það eru líka til fullt af lélegum bloggurum sem eru að reyna að skrifa eitthvað gáfulegt og koma með einhverjar frammúrstefnulegar skoðanir en eru því miður ekki að gera sig.
Held ég flokkist í þann hóp bloggara sem finnast þeir aldrei hafa neitt skemmtilegt að skrifa en pikka eitthvað smá inn öðru hvoru.
Jæja, hætt þessu röfli.

Ég er byrjuð nýtt líf eftir að ég skipti um vinnu.
Núna er öll fjölskyldan róleg á morgnana, engin klukka til að keppa við.
Húsmóðirin kemur slök heim og hefur fulla orku til þess að takast á við heimilislífið.
Bara gott :-)
Nú er ég að ljúka síðustu verkefnum í skólanum, skila lyklunum og þá er þetta búið.
Adios....



0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home