Dánarfregn
Í gær uppgötvaði ég að I-podinn minn var ekki að svara skipunum mínum. Reyndi hvað ég gat að koma honum af stað, en allt kom fyrir ekki: Hann er steindauður. Tölvan fann hann ekki einu sinni þegar ég reyndi að gera eitthvað.
Það skal tekið fram að hann er að skríða í árs afmælið sem mér finnst nú ekki svo mikið. Hef reyndar tekið eftir því upp á síðkastið að hleðslan dugaði ekki lengi.
Kannski var sökudólgurinn nokkrir vatnsdropar sem hafa lekið úr vatnsbrúsanum mínum í töskuna. Trúi því samt eiginlega ekki því I-podinn minn var í hulstri.
Ótrúlegt hvað svona lítið tæki getur allt í einu orðið ómisandi.
Ég VERÐ að fá nýjan sem fyrst. Best að klappa eiginmanninum áður en hann fer til útlanda þar sem þeir fást fyrir miklu minni pening en hérna. Blikk blikk ;-)

4 Comments:
At 11:39 e.h.,
Nafnlaus said…
mana þig á kaffihús með mér á mánudagskvöldið næstkomandi kl. 2000 og staður er humm humm caffi paris (því maður er svo ótrúlega out í þessum kaffihúsaferðum)
At 10:50 e.h.,
Nafnlaus said…
Minnir mig á einn ónefndann sem missti símann sinn ofan í klósettið. Hann sagði mér að hann hefði síðan geymt síman á ofninum í 2 daga og prófað að kveikja á honum, og það virkaði. 4 mánuðum seinna dó síminn svo að hann fór með hann í viðgerð þar sem hann var enn í ábyrgð. Þegar hann svo hrindi til að athuga með gang mála, sögðu þeir að þegar síminn var opnaður, var allt ryðgað inni í honum og upp hafi gusið heljarinnar hlandlykt.
At 1:09 f.h.,
Nafnlaus said…
ekkert blogg? erum við on með kaffihúsið á morgun? þarf líka að ræða við þig varðandi skráningu á einkaleyfi !!!
At 7:22 e.h.,
Nafnlaus said…
Þú varst ekkert fúl yfir dauða I-podsins, ég held að þú hafir bara verið glöð yfir að geta fengið nýjan....hömmhömmm... :)
Til hamingju með bleika poddinn...
Skrifa ummæli
<< Home