Fjallageit
Góða kvöldið!
Held mig áfram við eitt blogg á mánuði, er það ekki alveg nóg?
Mér finnst komin tími á eitt allsherjar mont/grobb blogg þar sem stiklað verður á stóru um fjallgöngur mínar upp á síðkastið.
Fjallgöngurnar byrjuðu fyrir um 3 vikum síðan.
Fyrst fór öll familían á Esjuna alla leið upp að Steini (ótrúlegt hvað einn steinn getur verið merkilegur). Við fórum leiðina hægra megin upp því við lögðum ekki alveg í allan brattann með 2stk 5 ára börn. Ferðin gekk vonum framar og allir gríðarlega montnir að ná takmarkinu. Krakkarnir voru ferlega dugleg og nú held ég að Esjuferð sé orðin árviss viðburður hjá fjölskyldunni.
Tveimur dögum síðar fór ég með saumaklúbbnum á Keili. Það var fín ganga og þar var það ég sem leiddi hópinn því ég fór þarna síðasta haust og öllum hólum kunnug. Fór á okkar fjallabíl og skemmti mér konunglega á 10 km "óbyggða" kaflanum að bílastæðinu.
Síðasta miðvikudag fórum við þrjár úr saumaklúbbnum í ferð með Útivistarræktinni á Vífilsfell. Það var frábær ferð. Veðrið dásamlegt og útsýnið stórkostlegt (kann ég ekki mörg lýsingarorð?)
Í gærkvöldi ákvað ég að skella mér ein upp á Esju til þess að prófa nýju gönguhækjurnar mínar (stafi). Mér fannst útlitið ekki svo bjart þegar ég kom því það var þoka yfir hálfu fjallinu. Ég ákvað samt að drífa mig. Tók nokkuð vel á því og komst upp að Steini á 47.01 mín. Ég hefði án efa getað verið aðeins fljótari því ég sá ekki alveg hvaða leið var hagstæðust þegar ég fór að nálgast steininn (vegna þokunnar auðvitað). Þegar nokkrir metrar voru að takmarkinu komst ég allt í einu út úr þokunni og við mér blasti alveg mögnum sjón: Skýjabreiða eins langt og augað eygði. Alveg eins og maður sér í flugvél. Auðvitað var ég ekki með myndavélina :-(.
Ákvað að fara upp á topp og skrifa í gestabókina. Mér fannst það ansi djarft hjá mér en ef maður fer varlega þá er þetta örugglega í lagi. Var frekar skúffuð þegar ég ætlaði að draga gestabókina fram (það var svo almennileg bók á Vífilsfelli) því úr hólknum komu bara krumpaðir miðar.
Var ekki svo lengi niður þegar ég komst niður úr klettunum, hljóp meira að segja smá spotta.
Lagði ekki í segja múttu ferðasöguna því hún hefði sagt að ég væri rugluð! Ein upp á Esju í þoku!
Var ferlega ánægð með mig og nú er stefnan á aðra ferð fljótlega og komast þá á 45 mín. Þá ætla ég ekki að hafa bakpoka með jakka sem ég fer aldrei í.
Er ótrúlega lítið eftir mig í lærunum eftir þetta. Aðallega blöðrur á stórutám sem eru óþægilegar.
Adios fjallageitin.
P.S. Ég er samt ekki hætt að hlaupa!

2 Comments:
At 12:46 f.h.,
Nafnlaus said…
Vá Greta! Þú mátt sko alveg vera grobbin ;o) frábært hjá þér. Er það ekki Ermasundið næst bara? LOL
Bettý.
At 11:36 f.h.,
Ég sjálf said…
Haha!
Þó ég sé fræg fyrir sundkunnáttu mína þá nenni ég ekki í Ermasund og svo kann ég ekki frönsku.
Ég hef þó lengst synt 10km í einu og það á skriðsundi! Að vísu mátti fara upp úr á klósettið.
G
Skrifa ummæli
<< Home