Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

laugardagur, júlí 24, 2004

I'm Back

Halló!
Við erum komin heim aftur.
Meira síðar.

mánudagur, júlí 05, 2004

Nú fer að styttast

í utanlandsferðina. Ég á eftir að strauja eitt Everest af þvotti og þvo nokkrar vélar. Ég hlýt að ná þessu eins og alltaf.

Ég kíkti á djammið á laugardaginn. Fór að leita að Harrisson Ford en hann rétt missti af mér. Komst að því að fólk á mínum aldri hittist í Bónus og á barnalæknavaktinni. Allaveganna hitti ég engan sem ég þekki. Ótrúlegt. En það var mjög gaman að kíkja aðeins á lífið. Félagsskapurinn var líka svo frábær, hinar óviðjafnanlegu mágkonur mínar.

Fékk nett sjokk í morgun þegar ég fór í klippingu: 3200 kall fyrir smá snyrtingu! Og BTW ég fer ekki á dýrustu stofuna í bæinn, hélt ég. Hvernig er hægt að að rukka þetta verð? Hvernig er svona klipping verðlögð? Tímakaup hárgreiðslukonunnar 2000 (semsagt fyrir hálftímann), Slit á skærun og greiðu: 500, 1 msk hárlakk 50 kr, 1 msk eitthvað annað efni 50 kr. Hárþurrkun 100 kr. hm.. næ þessu ekki alveg, ókei mér tókst að skanna síðustu 3 séð og heyrt og ætli afgangurinn hafi ekki farið í það?

Kveðja, Nýklippta ég.

Sunnudagur

Ja, hérna: Grikkir Evrópumeistarar í knattspyrnu.
Ég er nú hálf fegin að þessi keppni er búin. Ég er búin að reikna lauslega út að ég horfði á u.þ.b. 25 af 31 leik. Ekki voru þetta allt 90 því af skiljanlegum ástæðum gat ég stundum bara horft á leikina með öðru auganu og seinni leikir dagsins voru oft bara seinni hálfleikir (eftir háttatíma). ÓMG... ég ætla ekki að reikna út mínúturnar... en þetta var mjög skemmtilegt!

Nú tek ég smá hvíld í íþróttaáhorfi áður en ÓL. byrjar. Júhú mér finnst svo skemmtilegt að fylgjast með Ólympíuleikunum.

Fór á djammið í gær.
Komst að því að ég hitti ekki fólk á mínum aldri á pöbbarölti, heldur í Bónus og Hagkaup og já og kannski á barnalæknavaktinni. En það var mjög gaman að fara út og við stelpurnar skemmtum okkur konunglega.

Kær kveðja, EM-aðdáandi nr.1

fimmtudagur, júlí 01, 2004

Miðvikudagur

til mæðu.... nei djók. Byrjaði daginn á að labba upp 240 hæðir á 40 mín. Ég hef nú farið meira en þetta en ég held að ég sé ennþá pínu þreytt í fótunum eftir fjallgönguna um daginn. Svo fékk ég mígreni á mánudagskvöldið og þá er ég pínu slój dagana á eftir. Jæja, hætt að afsaka mig. Sá í æfingabókhaldinu mínu að ég er búin að fara 18 sinnum í leikfimi í júní. Mér finnst það bara ferlega gott hjá mér. Inni í þessu eru bara skiptin í world class, ekki göngutúrar með kerruna eða öll hlaupin á eftir börnunum.

Ég hugsa stundum þegar ég er komin á brettið/stigvélina kl.6.10 á morgnana: ÓMG ég er klikkuð að mæta svona snemma en þetta er svo hressandi. Þetta er það sem heldur mér gangandi yfir daginn. Ég verð að hafa orku til að komast í gegnum daginn.

Á morgun er Inga búin að plata mig í spinning niður í Laugar. Ég nenni varla að fara þangað en ég geri það fyrir hana, plús það að hún ætlar að vera á bíl.

Montkveðjur frá mér.