Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

mánudagur, júlí 05, 2004

Nú fer að styttast

í utanlandsferðina. Ég á eftir að strauja eitt Everest af þvotti og þvo nokkrar vélar. Ég hlýt að ná þessu eins og alltaf.

Ég kíkti á djammið á laugardaginn. Fór að leita að Harrisson Ford en hann rétt missti af mér. Komst að því að fólk á mínum aldri hittist í Bónus og á barnalæknavaktinni. Allaveganna hitti ég engan sem ég þekki. Ótrúlegt. En það var mjög gaman að kíkja aðeins á lífið. Félagsskapurinn var líka svo frábær, hinar óviðjafnanlegu mágkonur mínar.

Fékk nett sjokk í morgun þegar ég fór í klippingu: 3200 kall fyrir smá snyrtingu! Og BTW ég fer ekki á dýrustu stofuna í bæinn, hélt ég. Hvernig er hægt að að rukka þetta verð? Hvernig er svona klipping verðlögð? Tímakaup hárgreiðslukonunnar 2000 (semsagt fyrir hálftímann), Slit á skærun og greiðu: 500, 1 msk hárlakk 50 kr, 1 msk eitthvað annað efni 50 kr. Hárþurrkun 100 kr. hm.. næ þessu ekki alveg, ókei mér tókst að skanna síðustu 3 séð og heyrt og ætli afgangurinn hafi ekki farið í það?

Kveðja, Nýklippta ég.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home