Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

mánudagur, júní 07, 2004

Fyrsti í sumarfríi

Langráður dagur er runninn upp! Fyrsti í sumarfríi. Framundan er frí til 16.ágúst. Þetta er það sem heldur mér í kennarastarfinu. Að vísu þarf ég að nota nokkra daga í águst til undirbúnings áður en ég mæti en ég hugsa nú ekki um það núna.

Nú er ég í sumarfríi með E og B sem mér líst bara vel á. Við erum ekki búin að gera neitt sérstakt í dag. Bara dúlla okkur heima. Kannski skreppum við í smá biltúr á eftir.
Við athugum kannski rólóinn á morgun. Kannski þurfa þau að fara í einhverja aðlögun þar.

Bæjó, Greta í sumarfríi :-)

1 Comments:

  • At 1:07 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Til hamingju með fríið, ég dauðöfunda þig af því. Hugsaði einmitt í dag hvort ég gæti ekki tekið mér veikindafrí, en hætti svo við því hvað myndi ég græða á því með Eyjólf heima. ákvað því að vera áfram hraust og fara í vinnuna. Stundum segir Haukur við mig hvort að ég vilji ekki hvíla mig? ég segi sko jú, en eina leiðin til þess er að kaupa sér nótt á hóteli og sofa ótruflað. Held svei mér að ég verði bara að fara til útlanda í frí. ég er ánægð hvað þú ert dugleg að blogga núna.

     

Skrifa ummæli

<< Home