Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

miðvikudagur, janúar 25, 2006

Gallabuxur í ræktinni

Gallbuxnakellan var aftur að æfa áðan!
Þetta hefur þá ekki verið nein tilviljun þarna í fyrradag.

Jæks, hvað þetta hlýtur að vera óþægilegt.

sunnudagur, janúar 22, 2006

Sunnudagur til sælu.. eða kotasælu

Langt um liðið... mér hefur loksins tekist að grafa mig út úr snjóhúsinu og afþýða internettenguna...

Ég fór í WC í gær sem er nú svosem ekki í frásögur færandi. Ég er nú ekki vön því að skrifa um annað fólk á netinu en nú má ég til.
Það byrjaði á því að ég fór að fylgjast með konunni við hliðina á mér. Hún var í eldri kanntinum í stuttbuxum og GRIND horuð þannig að skinnið á fótleggjunum dinglaðist utan á beinunum. Hún hjólaði eins og brjálæðingur á einum (1) og á meðan hún var að því las hún blað. Þegar blaðið var búið fletti hún til baka og fór að leysa krossgátu!

Á meðan ég var að hjóla kom kona, líka í eldri kanntinum inn. Skellti jakkanum sínum á ofninn og settist í næsta í tæki. Ekki í frásögur færandi nema hvað að hún var í gallabuxum og peysu. Fyrst datt mér í hug að hún færi bara í tæki fyrir efri partinn, ó nei.... hún tók nokkur fótatæki líka. ÓMG.... í níðþröngum gallabuxum. Hún var nú ekki lengi, svona 15 mín hámark. Tók svo jakkann sinn og fór.

Ég hélt að það væri ekki hægt að toppa þessar tvær... en þá fór ég að taka eftir 3 skvísum sem töluðu svo mikið og flissuðu á hlaupabrettinu (nb. voru að labba). Þær voru svo í einkaþjálfun hjá einum gæjanum þarna (ætla ekki að setja nafnið hér, en hann byrjar á A). Þær voru svo ýkt að taka á því að það fór ekki fram hjá neinum þarna inni. ÆL...
Þetta voru svona týpur sem vilja helst ekki svitna í fínu æfingagöllunum sínum en eru samt svo að taka á því.

Sá svo einn eða tvo karlmenn í bolum með áletruninni Jónsmessuhlaup 1998, eða var það Reykjavíkurmaraþonið 1988???

Já, það er gaman að æfa í World class.




sunnudagur, janúar 08, 2006

Nýtt ár og ný markmið!

Halló!

Á nýju ári er ekki úr vegi að líta um öxl og rifja upp hápunkta síðasta árs í lífinu.

* Fór á U2 tónleika í Köben. Ég á eftir að lifa á þessu alla æfi. Nú langar mig bara aftur.
* Fór líka á Duran Duran tónleika í Egilshöll. Frábærir "aftur til fortíðar" tónleikar.
* Hljóp 10km í Rvk maraþoninu. Hélt aldrei að ég ætti eftir að geta það. Nú er ég orðin æst í að gera þetta aftur. Markmiðið er að bæta tímann næsta sumar. Set markið á 55 mínútur.
* Þetta var gott ár fyrir fjölskylduna mína. Börnin mín og eiginmaðurinn alltaf jafn yndisleg.
* Enduðum árið með stæl og keyptum okkur draumahúsið.

Er alveg viss um að nýtt ár verði jafn skemmtilegt og viðburðaríkt og það síðasta.

Markmið fyrir árið 2006:
Fyrir utan allt þetta dæmigerða... eiga góðar stundir með fjölskyldunni , missa nokkur kíló og vera dugleg í ræktinni:
* Ætla að lesa meira.

* Ætla að horfa minna á sjónvarpið.
* Ætla að smitast af skósýki

Eru þetta ekki göfug markmið????