Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

mánudagur, febrúar 28, 2005

Blogg

Ég hugsa að ég leggi bloggsíðuna á hilluna. Eftir að Stebbi litli bróðir minn (hann er reyndar bara 20 cm hærri en ég) fór að blogga hef ég fyllst þvílíkri minnimáttarkennd að ég hef barasta ekki getað skrifað neitt. Hann leynir svo sannarlega á sér drengurinn. Bullið sem vellur upp úr honum, vissi ekki að hann ætti þetta til.
Inga er líka að blogga og hún gerir það líka vel. Mjög miklar pælingar hjá henni í bland við minna gáfulegri hluti.
Svo kem ég elsta systirin, lífsreyndust og klárust.... með glataðasta bloggið. Hver ætli nenni að lesa um þreytta húsmóðir/kennslukonu sem kemur endurnærð úr andlitsbaði??? Ekki ég. Hver ætli nenni að lesa um húsmæðraorlof til London??? Ekki ég. Hver nennir að lesa nokkuð af því sem ég skrifa???? Ekki ég.

Ég legg ekki árar í bát, mótlætið herðir mig bara....

Adjö,

laugardagur, febrúar 12, 2005

Dekurdagur

Í dag átti ég frábæran dag. BTW (við veginn..hehe þessi er alltaf góður) var frí hjá mér í dag.
Byrjaði daginn á að fara í WC. Tók vel á þríhöfðanum því ég ætla EKKI að fá svona "flappsa". Fór í gufu á eftir. Ég man bara ekki hvenær ég fór síðast í gufu??? Jú, það var í gær því þá var ég líka í fríi.
Fór í Kringluna til þess að kaupa skírnargjöf, en keypti mér skó, pæjubol, sjampó fyrir ómögulegt hár(mitt hár) en enga gjöf!
Í hádeginu borðaði ég með Ingu www.blog.central.is/glora í Laugum.
Dreif mig svo á snyrtistofu í andlitsbað. Mikið svakalega er ég mjúk núna!!!
Sótti krakkana, fór í Smáralindina að skoða sjúkrabíl, þyrlu ofl. Mjöööög spennandi fyrir litla krakka.
Rétt náði að fara heim, skipta um föt og gera mig klára fyrir næstu dagskrárliði. Út að borða og í leikhús.
Já, svona eiga almennilegir frídagar að vera.
Verð víst að drífa mig (og krakkana) í bæinn í fyrramálið til þess að kaupa gjöfina því mér er boðið í skírn á morgun.

Góða nótt!

P.S. U2 miðarnir eru komnir í hús!

föstudagur, febrúar 04, 2005

Föstudagur

til frægðar.

Idolið í kvöld okkar bíða 2 amazing race þættir. Hvað gæti verið betra?

Ædol kveðjur,

fimmtudagur, febrúar 03, 2005

U2

Fréttir dagsins: Ég ásamt maka, systur og mági erum búin að kaupa miða á eina bestu hljómsveit allra tíma; U2. Ég er svo sniðug að vera í aðdáendaklúbbnum og gat keypt miða í forsölu (liggaliggalái). Gekk frá kaupunum í gærkvöldi. Ánægju straumur fór um mig þegar ég prentaði kvittunina út og sá : Enjoy the show!
31.júlí verð ég í Parken í Köben í brjáluðu stuði á tónleikum :-) og dagana þar á eftir verð ég að spóka mig um á Strikinu með eiginmanninum og börnin heima á Íslandi.

Ég er bara í svaka utanlandsferðaskipulagi. Fer til London í húsmæðraorlof eftir nákvæmlega 6 vikur :-) Það verður örugglega alveg æðislegt. 3 dömur saman (eða stelpur??).

Annars gengur lífið sinn vanagang.

Bæjó, U2 aðdáandi #1