Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

þriðjudagur, febrúar 13, 2007

Dánarfregn

Í gær uppgötvaði ég að I-podinn minn var ekki að svara skipunum mínum. Reyndi hvað ég gat að koma honum af stað, en allt kom fyrir ekki: Hann er steindauður. Tölvan fann hann ekki einu sinni þegar ég reyndi að gera eitthvað.
Það skal tekið fram að hann er að skríða í árs afmælið sem mér finnst nú ekki svo mikið. Hef reyndar tekið eftir því upp á síðkastið að hleðslan dugaði ekki lengi.
Kannski var sökudólgurinn nokkrir vatnsdropar sem hafa lekið úr vatnsbrúsanum mínum í töskuna. Trúi því samt eiginlega ekki því I-podinn minn var í hulstri.
Ótrúlegt hvað svona lítið tæki getur allt í einu orðið ómisandi.

Ég VERÐ að fá nýjan sem fyrst. Best að klappa eiginmanninum áður en hann fer til útlanda þar sem þeir fást fyrir miklu minni pening en hérna. Blikk blikk ;-)