Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

mánudagur, júní 07, 2004

Fyrsti í sumarfríi

Langráður dagur er runninn upp! Fyrsti í sumarfríi. Framundan er frí til 16.ágúst. Þetta er það sem heldur mér í kennarastarfinu. Að vísu þarf ég að nota nokkra daga í águst til undirbúnings áður en ég mæti en ég hugsa nú ekki um það núna.

Nú er ég í sumarfríi með E og B sem mér líst bara vel á. Við erum ekki búin að gera neitt sérstakt í dag. Bara dúlla okkur heima. Kannski skreppum við í smá biltúr á eftir.
Við athugum kannski rólóinn á morgun. Kannski þurfa þau að fara í einhverja aðlögun þar.

Bæjó, Greta í sumarfríi :-)

miðvikudagur, júní 02, 2004

Íslendingur

Við fórum í dag að skoða víkingaskipið Íslending. Þvílík listasmíði! Vonandi verða plön Reykjanesbæjar um að byggja almennilegt hús utan um það að veruleika. Þá verður mastrið sett upp og seglið.
Eftir að hafa hlustað á smá fyrirlestur hjá Gunnari sem smíðaði skipið og sigldi því til Ameríku hef ég komist að því að það sem ég er búin að vera að kenna í Íslandssögunni stenst ekki alveg.
Þessi skip sem landnámsmennirnir notuðu til að komast hingað voru svo hraðskreið að það tók bara nokkra daga að "skreppa" hingað.

Æ.. ég nenni ekki að segja skoðun mína á ákvörðun forsetans um fjölmiðlafrumvarpið. Hún kom mér allaveganna á óvart!

Niðurtalningin heldur áfram: 2 dagar í sumarfríið!!!!

þriðjudagur, júní 01, 2004

3 dagar....

í sumarfríið!!! Jeiiii.
Fór í dag í mjög fína hjólaferð í Elliðárdalinn með árganginn. Það eru ár og aldir síðan ég hef stigið upp á eitthvað annað en þrekhjól, en það er eins og með ýmislegt: Einu sinni lært þú getur ekki gleymt.
Ég set hér með hjól á 5 ára óskalistann minn.

Á morgun förum við í Keflavík að skoða Íslending. Það verður örugglega fróðlegt :-) (ég segi þetta ekki bara því ég er kennarinn).